Innlent

Einar segir for­seta­em­bættið um ekki neitt

Jakob Bjarnar skrifar
Einari þykir fyndnar kenningar um heimsklíkur glóbalista, sem vilja leggja undir sig heiminn með því að koma sínum agent fyrir á Bessastöðum.
Einari þykir fyndnar kenningar um heimsklíkur glóbalista, sem vilja leggja undir sig heiminn með því að koma sínum agent fyrir á Bessastöðum. vísir/vilhelm

Einar Kárason rithöfundur fer yfir stöðuna í baráttunni um Bessastaði, að hætti hússins. Hann furðar sig á tilstandinu.

„Nú er verið að skjóta á forsetaframbjóðendur fyrir að tala í innihaldslitlum frösum, en við hverju er að búast? Hvað á fólk að segja þegar það býður sig fram til embættis sem snýst í rauninni um ekki neitt?“ spyr Einar á Facebook-síðu sinni.

Ekki er á helstu frambjóðendum að skilja að svo sé því þeir ætla að gera hitt og þetta í öllum viðtölum.

„Einn frambjóðandinn talar skýrt um að hann stefni á að ráðherrar séu ekki alþingismenn, en sami góði maður hlýtur samt að vita, eins og allir aðrir, að það er Alþingi sem ræður slíku en ekki forsetinn.“

Þá þykir Einari fyndnar kenningar um að heimsklíkur glóbalista, sem stefna að heimsyfirráðum, vilji seilast til áhrifa með því að koma sínum agent fyrir á Bessastöðum. Hallur Hallsson blaðamaður er meðal þeirra en hann hefur ritað pistil sem hefur fengið nokkra útbreiðslu.

„Fyndið er svo líka að sjá vel unnar og útspekúleraðar bollaleggingar um að heimsklíkur glóbalista séu með vandlega skipulagt plott um að ná undir sig forsetaembættinu. En þar sem kenningin innifelur að þarna séu öfl sem stefni á heimsyfirráð, þá mætti klóra sér í höfðinu yfir því hvað þeir ætli að gera með valdalaust embætti á Íslandi, af öllum stöðum?“

Víst er að Einar gefur ekki mikið fyrir þennan ys og þys um ekki neitt.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×